Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ákvörðun EDPB varðandi WhatsApp

30. júlí 2021

Á síðasta fundi Evrópska persónuverndarráðsins var tekin ákvörðun á grundvelli 65. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar (e. GDPR) varðandi Whatsapp IE. Ákvörðunin fjallar um hvernig leysa eigi úr ágreiningi varðandi tiltekin atriði í drögum að ákvörðun írsku persónuverndarstofnunarinnar sem forystustjórnvalds í máli Whatsapp en fyrirtækið er með höfuðstöðvar sínar á Írlandi.

Aðdragandi málsins er sá að írska stofnunin ákvað að hefja frumkvæðisathugun á því hvort WhatsApp IE uppfyllti gagnsæiskröfur 12., 13. og 14. gr. persónuverndarreglugerðarinnar. Stofnunin sendi í kjölfarið frá sér drög að ákvörðun til hlutaðeigandi persónuverndarstofnana í Evrópu í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar. Var drögunum andmælt af nokkrum hlutaðeigandi persónuverndarstofnunum. Andmælin vörðuðu meðal annars flokka þeirra brota og tegundir persónuupplýsinga sem undir voru í málinu sem og því hvort að beiting valdheimilda væri viðeigandi og nægileg af hálfu írsku stofnunarinnar.Írska stofnunin sá sér ekki fært að fara að andmælunum og vísaði þeim því til EDPB til ákvörðunar. Niðurstaða ráðsins er sú að andmælin eigi rétt á sér og mun innan skamms tilkynna ákvörðun sína formlega til viðkomandi eftirlitsyfirvalda og skal írska stofnunin fara eftir þeirri ákvörðun.

Fréttatilkynning EDPB

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820