Fara beint í efnið
Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Ábending vegna gagnaleka af Booking.com

27. ágúst 2026

Persónuvernd hafa borist ábendingar vegna tilrauna til svika í kjölfar gagnaleka af vefsíðunni Booking.com.

Svikatilraunin mun felast í því að notandanum eru send skilaboð eða tölvupóstur í aðdraganda gistingar og reynt er að ná kreditkortaupplýsingum með blekkingum.

Þeim sem hafa bókað gistingu í gegnum vefsíðuna er bent á að hafa varann á þegar þeir móttaka skilaboð eða tölvupóst sem virðast vera frá Booking.com og góð regla er að hafa samband við vefsíðuna sjálfstætt (ekki með því að svara skilaboðunum beint) til að fá uppruna skilaboðanna staðfestan.

Persónuvernd er með málið til skoðunar að því er varðar vinnslu persónuupplýsinga.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820