Ágreiningur um líftryggingu. Frávísun
21. nóvember 2008
Vísað hefur verið frá máli K sem óskaði líf- og sjúkdómatryggingar en var synjað vegna sögu um arfgenga heilablæðingu.
Vísað hefur verið frá máli K sem óskaði líf- og sjúkdómatryggingar en var synjað vegna sögu um arfgenga heilablæðingu. Hún vildi leggja fram gögn um niðurstöður erfðarannsóknar, en tryggingafélagið neitaði viðtöku. Persónuvernd taldi það vera hlutverk sérstaks aðila, úrskurðarnefndar í vátryggingamálum, að skera úr málinu.