Trúnaður og einkalífsvernd í heilbrigðisþjónustu
26. september 2006
Persónuvernd hefur látið þýða EuroSOCAP staðal um trúnað og einkalífsvernd í heilbrigðisþjónustu. Staðallinn var saminn í tengslum við EuroSOCAP verkefnið sem er styrkt af Evrópuráðinu og miðar að því að greiða úr erfiðleikum sem upp kunna að koma vegna togstreitu á milli þekkingar- og upplýsingasamfélagsins annars vegar og laga- og siðferðiskrafna um trúnaðarskyldu og einkalífsvernd í heilbrigðisþjónustu hins vegar.
Á meðal fjölþættra hlutverka Persónuverndar er að fylgjast með almennri þróun á sviði persónuupplýsingaverndar á innlendum og erlendum vettvangi og hafa yfirsýn yfir og kynna helstu álitaefni sem tengjast vinnslu persónuupplýsinga, sem og að leiðbeina þeim sem ráðgera að vinna með persónuupplýsingar um persónuvernd. Í samræmi við það er þessi staðall birtur hér (word-skjal).
Það athugast að staðallinn felur fyrst og fremst í sér siðareglur, en er ekki lagalega bindandi og hvikar ekki til ákvæðum íslenskra laga.