Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Þessi frétt er meira en árs gömul

Nýjar hættur og ógnir við vinnslu og meðferð persónuupplýsinga

12. júlí 2016

Ársskýrsla Persónuverndar 2015

Reykjavík, 12. júlí 2016

Tæknibylting undanfarinna ára hefur leitt til þess að nýjar hættur og ógnir steðja að vinnslu og meðferð persónuupplýsinga. Umbylting hefur orðið í því hvernig hægt er að nálgast og safna persónuupplýsingum – og gera þær upplýsingar að verðmætri söluvöru. Þessi bylting endurspeglast í auknum málafjölda Persónuverndar, en málafjöldi Persónuverndar hefur nærri þrefaldast frá árinu 2002. Á árinu 2015 var stofnunin með 1.961 mál til meðferðar.

Einnig hafa umfangsmestu breytingar á evrópskri, og þ.a.l. íslenskri, persónuverndarlöggjöf í meira en 20 ár, verið samþykktar. Ný Evrópulöggjöf sem kemur til framkvæmda á árinu 2018 mun verulega styrkja rétt einstaklinga til að hafa stjórn á persónuupplýsingum sínum. Breytingarnar munu auka mjög verkefni og skyldur Persónuverndar, m.a. hvað varðar samvinnu við aðrar persónuverndarstofnanir í Evrópu.

Breytingarnar munu einnig leggja umtalsvert auknar skyldur á fyrirtæki og stofnanir á sama tíma og breytingarnar munu einfalda samskipti við eftirlitsstofnanir og af þeirri ástæðu draga úr kostnaði fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vinna persónuupplýsingar. Þá verða eftirlitsstofnunum veittar víðtækar heimildir til að leggja háar stjórnsýslusektir á aðila sem gerast brotlegir við persónuverndarlög. Fyrrnefndar sektarfjárhæðir geta numið allt að 4% af heildar ársveltu fyrirtækja eða 20 milljónum evra.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í ávarpi Helgu Þórisdóttur, forstjóra Persónuverndar í ársskýrslu stofnunarinnar sem hefur verið birt á heimasíðu Persónuverndar í dag.

Skýrslan er í fyrsta skipti einungis gefin út á rafrænu formi en hana má nálgast hér.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820