Þessi frétt er meira en árs gömul
19 frumkvæðisathuganir og 4 úttektir í vinnslu hjá Persónuvernd
30. september 2021

Persónuvernd sinnir eftirlitshlutverki sínu m.a. með því að athuga mál að eigin frumkvæði. Það gerir hún með annars vegar frumkvæðisathugunum og hins vegar úttektum. Algengast er að frumkvæðisathuganir hefjist í kjölfar ábendinga sem berast Persónuvernd og lúta þær að nánar tilgreindri vinnslu persónuupplýsinga, oft í tengslum við tiltekin atvik. Úttektir lúta að almennri framkvæmd, t.d. að almennum öryggismálum eða verklagi. Persónuvernd ákveður að fara í úttektir á grundvelli eigin mats eða í kjölfar ábendinga eða tilkynninga um öryggisbrest.
Það að frumkvæðisathugun eða úttekt sé til meðferðar hjá Persónuvernd felur ekki í sér að tekin hafi verið afstaða til lögmætis vinnslu persónuupplýsinga heldur er það gert í ákvörðunum um lok málanna.
Nú eru 19 frumkvæðismál í vinnslu hjá Persónuvernd. Málin varða margvíslega vinnslu persónuupplýsinga, m.a. vinnslu persónuupplýsinga skólabarna, heilsufars- og fjárhagsupplýsinga. Málin eru misumfangsmikil og mislangt á veg komin en vonir standa til að þeim verði flestum lokið fyrir árslok 2021.
Málin lúta að eftirfarandi vinnslu:
Upplýsingaöflun í smáforriti Ferðagjafar stjórnvalda
Notkun Seesaw forritsins í grunnskólum Reykjavíkur
Aðgangur að persónuupplýsingum í Innu, upplýsingakerfi framhaldsskólanna
Öryggi persónuupplýsinga hjá barnaverndarnefnd Hafnarfjarðar
Flutningur leghálssýna frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til Danmerkur
Vinnsla persónuupplýsinga hjá þeim hluta starfsemi sýkla- og veirufræðideildar Landspítala sem fluttur var á starfsstöð erfðarannsóknafyrirtækis
Aðkoma embættis landlæknis að skimun erfðarannsóknafyrirtækis fyrir SARS-CoV-2 veirunni og mótefni við henni í einstaklingum á Íslandi og við landamæri
Blóðsýnataka úr COVID-19-sjúklingum á Landspítala og öflun samþykkis þeirra í þágu vísindarannsóknarinnar Faraldsfræði SARS-CoV-2 veirunnar og áhrif erfða og undirliggjandi sjúkdóma á COVID-19 sjúkdóminn sem hún veldur
Rafræn vöktun á íþróttaleikvangi
Birting ljósmynda af börnum á vef nýsköpunarfyrirtækis
Vinnsla persónuupplýsinga barna í smáforriti og vefkerfi nýsköpunarfyrirtækis
Vinnsla persónuupplýsinga barna í vefkerfi nýsköpunarfyrirtækis
Birting persónuupplýsinga í dómum á Netinu
Birting persónuupplýsinga í tveimur dómum Héraðsdóms Reykjavíkur
Staða persónuverndarfulltrúa Reykjavíkurborgar við breytingu á skipulagi
Válisti á vefsíðu Skattsins
Fræðsla lánshæfismatsfyrirtækis vegna vinnslu fjárhagsupplýsinga
Áhrif uppflettinga í vanskilaskrá lánshæfismatsfyrirtækis á niðurstöður skýrslna um lánshæfi
Meðferð netfangalista hjá veitingafyrirtæki
Persónuvernd vinnur nú einnig að fjórum úttektum sem allar varða vinnslu heilsufarsupplýsinga. Þetta eru skriflegar úttektir á stöðu persónuverndarfulltrúa Landspítala annars vegar og erfðarannsóknafyrirtækis hins vegar og umfangsmeiri úttektir á vinnslu persónuupplýsinga hjá Sjúkratryggingum Íslands og í smáforriti apóteks. Til stendur að þessum úttektum verði öllum lokið fyrir árslok 2021.
Birtingin er liður í að auka gagnsæi í daglegum störfum Persónuverndar sem eftirlitsaðila. Stjórnvöld skulu veita almenningi með reglubundnum hætti upplýsingar um starfsemi sína, svo sem með rafrænni útgáfu skýrslna, samantektum um mikilvæg verkefni eða útgáfu annarra gagna, og vinna markvisst að því að gera skrár yfir mál, lista yfir málsgögn og gögnin sjálf aðgengileg með rafrænum hætti, sbr. 13. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012.
