Norræn mál um notkun tölvuskýjalausna Microsoft Office 365 og Google Apps
5. nóvember 2012
Til fróðleiks er hér birt stutt umfjöllun um mál hjá Datatilsynet í Danmörku og Datatilsynet í Noregi um notkun tölvuskýjaþjónustu hjá hinu opinbera. Í málunum er rík áhersla lögð á gerð vinnslusamnings við tölvuskýjaveitanda, sem uppfyllir skilyrði laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, þar á meðal um gerð áhættumats.
Notkun IT-háskóla Kaupmannahafnar á Microsoft Office 365
Fyrr á þessu ári gaf Datatilsynet í Danmörku út álit um notkun IT-háskólans í Kaupmannahöfn á tölvuskýjaþjónustu Microsoft, þ.e. Office 365. Í málinu hafði Datatilsynet m.a. óskað svara frá Microsoft við ítarlegum spurningum um vinnslu og meðhöndlun persónuupplýsinga í Microsoft Office 365, og gefið til kynna þær kröfur sem ábyrgðaraðili vinnslu verður að uppfylla þegar nota skal tölvuskýjaþjónustu á borð við Office 365.
Datatilsynet taldi að það væri á ábyrgð háskólans að sjá til þess að notkunin væri í samræmi við dönsk lög, m.a. með því að gera fullnægjandi vinnslusamning við Microsoft, í samræmi við ákvæði persónuverndarlaga, og reglna um öryggi persónuupplýsinga hjá hinu opinbera, sem og að framkvæma áhættumat. Þá var sérstök áhersla lögð á það að það félli í hlut háskólans, sem ábyrgðaraðila gagnanna, að tryggja að óviðkomandi þriðji aðili fengi ekki aðgang að þeim.
Niðurstaða málsins var sú að Datatilsynet gerði ekki athugasemdir við notkun háskólans á Office 365, að því gefnu að meðferð háskólans á persónuupplýsingum, við notkun á Office 365, væri í samræmi við samninginn.
Álit Datatilsynet frá 10. júlí 2012.
Notkun tveggja sveitarfélaga í Noregi á Google Apps og Microsoft Office 365
Í lok september sl. birti Datatilsynet í Noregi niðurstöður sínar í tveimur stefnumarkandi málum varðandi notkun tveggja sveitarfélaga á tölvuskýjaþjónustu, n.t.t. Google Apps og Microsoft Office 365. Niðurstaða stofnunarinnar var sú að sveitarfélagi væri heimilt að nota Google Apps, en öðru sveitarfélagi voru veittar leiðbeiningar varðandi notkun þess á Microsoft Office 365.
Í báðum málunum gerði Datatilsynet ekki athugasemdir við notkun sveitarfélaganna á tölvuskýjaþjónustu, en í báðum málunum lá fyrir áhættumat og vinnslusamningur við veitendur tölvuskýjaþjónustunnar, í samræmi við norsk lög.
Álit Datatilsynet frá 21. september 2012 um sveitarfélagið Moss.
Álit Datatilsynet frá 21. september 2012 um sveitarfélagið Narvik.