Umboð vegna afhendingar lyfja
Almennt um afhendingu lyfja
Samkvæmt reglugerð um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja má aðeins afhenda lyf þeim sem lyfjaávísunin er stíluð á, eða eiganda eða umráðamanni dýrs, nema til komi umboð frá rétthafa ávísunarinnar til tiltekins einstaklings.
Ákvörðun um umboð kemur til af því að fyrr á árum komu ítrekað upp tilvik þar sem lyf voru leyst út af öðrum en eiganda lyfjaávísunar, án heimildar hans. Því var ákveðið að skerpa á túlkun og framkvæmd ákvæðis í 19. Grein reglugerðarinnar, þar sem segir m.a.: „Lyf verða einungis afhent sjúklingi eða umboðsmanni hans […]“. Til að ótvírætt sé hver geti talist umboðsmaður í þessu tilliti, er nauðsynlegt að kalla eftir umboði þess sem sækir lyf í apótek fyrir annan en sjálfan sig. Í öllum tilvikum þarf að framvísa persónuskilríkjum, hvort sem um ræðir eiganda eða umboðsmann.
Umboð vegna afhendingar lyfja
Í umboði skal koma fram nafn og kennitala umboðsmanns. Meginreglan er sú að umboð til afhendingar lyfja sé veitt með rafrænum hætti, fari í gegnum Mínar síður einstaklinga á Ísland.is, undir Heilsa - Lyfin mín. Rafræn lausn sem þessi, þar sem einstaklingar skrá sig inn með rafrænum skilríkjum, er örugg leið til að tryggja réttmæti umboða og þar með örugga afhendingu lyfja til umboðsmanna. Jafnframt veitir rafræna lausnin betri stjórn á veittu umboði einstaklings umfram þá skriflegu, ef til þess kemur að breyta þurfi umboði eða ógilda það.
Í undantekningartilvikum, þar sem ekki er hægt að veita rafrænt umboð, má útbúa skriflegt umboð vegna afhendingar lyfja. Skriflegt umboð þarf að vera vottað af tveimur aðilum til að tryggja réttmæti þess. Nöfn og kennitölur allra aðila skulu koma fram.
Rafræn umboð í gegnum Ísland.is gilda sjálfkrafa í þrjú ár ef ekki er annað valið, en sá sem veitir umboðið getur valið lengri eða skemmri tíma. Gildistími skriflegs umboðs þarf að koma fram í skjalinu.
Hverjir geta veitt umboð?
Meginreglan er sú að allir, sem náð hafa 16 ára aldri, geta veitt öðrum umboð til að sækja fyrir sig lyf í apótek.
Þegar börn hafa náð 16 ára aldri er litið á þau sem sjálfstæða notendur heilbrigðisþjónustu, sbr. ákvæði VI. kafla laga um réttindi sjúklinga. Frá þeim aldri þurfa ungmenni því að veita formlegt umboð í gegnum Ísland.is til þeirra aðila sem leysa út lyfjaávísanir í þeirra nafni. Þetta á við jafnvel þótt sá sem fyrirhugar að sækja lyf ungmennisins sé foreldri eða forsjáraðili.
Börn yngri en 16 ára
Börn að 16 ára aldri eru tengd foreldrum eða forsjáraðilum á Mínum síðum viðkomandi á Ísland.is og þannig verður sjálfkrafa til umboð til þeirra til að leysa út lyf fyrir börn sín. Foreldri eða forsjáraðili getur síðan, ef þörf er á, veitt þriðja aðila umboð til að ná í lyf fyrir barn sitt undir sextán ára aldri, í gegnum rafrænt umboðskerfi á Ísland.is.
Heimild lyfjafræðinga til frávika
Í reglugerðinni um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja er heimild fyrir lyfjafræðinga til að víkja frá kröfu um umboð við afhendingu lyfja þegar sérstaklega stendur á.
Lyfjafræðingar geta byggt ákvörðun sína um að víkja frá umboðskröfu út frá gögnum opinberra aðila eða lækni sjúklingsins, sem útskýra hvers vegna aðstandandi sækir lyfin án umboðs og hvers vegna er ekki hægt að uppfylla kröfu um umboð.
Ef einstaklingur hefur þegar veitt rafrænt umboð, gildir almennt ekki nýtt skriflegt umboð nema sem frávik, og að lyfjafræðingur hafi fullvissað sig um lögmæti þess.
Sérstakar aðstæður
Öryrkjar og fatlaðir einstaklingar
Í lögum um sjúkraskrár er kveðið á um heimild sérfræðilæknis til að skrá og eftir atvikum veita rafrænt umsýsluumboð til þriðja aðila, fyrir hönd einstaklings sem er ófær um að nota rafræn skilríki og/eða rafrænar gáttir, eða er ófær um að veita umboðið sjálfur.
Réttindagæsla fyrir fatlað fólk
Í þeim tilvikum þar sem fötluðu fólki eða talsmönnum þess finnst á sér brotið, t.d. þar sem aðgangur einstaklinga að nauðsynlegum lyfjum er heftur, bendir Lyfjastofnun á réttindagæslu fyrir fatlað fólk hjá Mannréttindastofnun Íslands við úrlausn slíkra mála. Hægt er að hafa samband í síma 520 8802 eða á netfangið rettindagaesla@mannrettindi.is.
Skjólstæðingar dvalarheimila og sambýla
Lyfjafræðingur í apóteki metur með hvaða hætti skal ganga úr skugga um ótvírætt umboð viðkomandi til að sækja lyf. Jafnframt er lyfjafræðingi heimilt að víkja frá kröfu um umboð við afhendingu lyfja þegar sérstaklega stendur á.
Erlendir ríkisborgarar
Lyfjafræðingur í apóteki metur með hvaða hætti skal ganga úr skugga um ótvírætt umboð viðkomandi til að sækja lyf fyrir erlendan ríkisborgara.
