Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Afhending lyfja frá heildsölu til einstaklinga

Lyfjastofnun getur veitt undanþágu fyrir tiltekin lyf og leyft afhendingu beint til einstaklinga frá heildsölu eða heilbrigðisstofnun í sérstökum tilvikum. Þessi undanþága er byggð á 33. grein lyfjalaga 100/2020.

Afhending er heimiluð á lyfjum í ATC flokkum B05D (kviðskilunarvökvar) og V03AN (lyfjagös).

Kröfur til heildsala

Ekki er þörf á að sækja sérstaklega um leyfi til Lyfjastofnunar fyrir afhendingu á lyfjunum sem um ræðir til einstaklinga. Hins vegar er nauðsynlegt að heildsölur uppfylli neðangreindar kröfur.

1. Afhendingar skulu skráðar

Heildsölur skulu halda skráningu yfir lyf sem eru afhent einstaklingum. Fyrir hverja afhendingu til almennings þarf að standa skil á eftirfarandi:

  • Vörunúmer lyfs,

  • ATC flokkur,

  • heiti lyfs (ásamt styrkleika og lyfjaformi),

  • magn sem afhent er,

  • hvenær afhending átti sér stað (dagsetning).

2. Krafa um árleg skil

Í byrjun hvers árs skulu heildsölur sem afhenda lyf beint til einstaklinga senda lista yfir þau lyf sem voru afhent á nýliðnu ári. Listinn á að vera á Excel-formi og sendur á netfangið lyfjastofnun@lyfjastofnun.is.

Sækja eyðublað fyrir árleg skil (Excel).