Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Lyfjaútibú

Lyfjaútibú er hluti lyfjabúðar (apóteks) og er rekið í byggðarlagi þar sem ekki er starfrækt lyfjabúð. Útibúið er rekið á ábyrgð lyfsöluleyfishafa og heyrir undir lyfsöluleyfi hans.

Það hvaða þjónustu lyfjaútibú má veita ræðst af því hvernig það er flokkað.

Leyfi og umsóknir

Afgreiðsla lyfja úr lyfjaútibúi

Þegar heimilt er í lyfjaútibúi að afgreiða lyf gegn lyfseðli, skal afgreiðsla ekki fara fram nema að undangengnu eftirliti lyfjafræðings.

Sé lyfjafræðingur ekki starfandi í lyfjaútibúi skal lyfjafræðingur í lyfjabúðinni, þaðan sem lyfjaútibúið er starfrækt, fara yfir lyfseðil og áletrunarmiða áður en lyf er afhent. Lyfseðill og áletrunarmiðar skulu sendir í lyfjabúðina með bréfsíma eða með sambærilegum hætti en starfsmaður lyfjaútibúsins skal áður hafa ritað inn á lyfseðilinn norrænt vörunúmer eða hliðstætt auðkenni þess lyfs sem hann hyggst afhenda gegn lyfseðlinum.

Afgreiðslur úr neyðarforða nauðsynlegra lyfja úr lyfjaútibúi C skulu vera skráðar í atvikaskrá og auðkenndar sérstaklega.

Auðkenni og merking lyfjaútibús

Lyfjaútibú skulu greinilega auðkennd heiti lyfjabúðarinnar og þess skýrt getið hvort um sé að ræða lyfjaútibú í flokki A, B eða C.

Merking lyfja

Lyf skulu auðkennd því lyfjaútibúi sem þau eru afgreidd frá.

Ábyrgð og eftirlit lyfsöluleyfishafa

Lyfsöluleyfishafi skal hafa reglubundið eftirlit með rekstri lyfjaútibús síns og ber hann alla ábyrgð á að þar sé farið að settum lögum og reglugerðum. Lyfsöluleyfishafi skal eigi sjaldnar en mánaðarlega yfirfara birgðir eftirritunarskyldra lyfja, hitastigsskráningu lyfjageymslna, lyfseðla og þrifaskema útibúsins og kvitta fyrir yfirferðina.

Í lyfjaútibúi skal vera bók sem lyfsöluleyfishafi kvittar í hverju sinni að loknu eftirliti.