Mönnun apóteka
Efnisyfirlit
Lyfjastofnun hefur eftirlit með því að lögbundin lágmarksmönnun í lyfjabúðum sé í samræmi við ákvæði lyfjalaga.
Lyfjastofnun er heimilt að veita tímabundna undanþágu vegna mönnunar þar sem umfang er lítið og/eða hætta á að starfsemi leggist annars niður á svæðinu.
Lyfjastofnun getur einnig veitt lyfjafræðinema, sem lokið hefur fjórða árs námi í lyfjafræði og tveggja mánaða verknámi í apóteki, leyfi til að gegna afmörkuðum störfum lyfjafræðings tímabundið.
Fjöldi lyfjafræðinga í apóteki
Í lyfjabúð skulu að jafnaði vera ekki færri en tveir lyfjafræðingar að störfum á almennum afgreiðslutíma, við afgreiðslu lyfseðla og fræðslu og ráðgjöf um rétta notkun og meðhöndlun lyfja. Þetta gildir einnig um álagstíma utan almenns afgreiðslutíma.
Lyfjastofnun er heimilt, að fenginni umsókn þar um, að leyfa að í lyfjabúð starfi einungis einn lyfjafræðingur, enda sé umfang starfsemi lítið og þjálfað starfsfólk sé lyfjafræðingnum til aðstoðar.
Lyfjastofnun er jafnframt heimilt, að fenginni umsókn þar um, að veita tímabundið leyfi fyrir því að í lyfjabúð starfi aðeins einn lyfjafræðingur, enda sé hætta á því að starfræksla lyfjabúðar leggist að öðrum kosti niður á svæðinu.
Eftirlit með mönnunarkröfu
Lyfjastofnun hefur eftirlit með að lögbundin lágmarksmönnun í lyfjabúðum sé í samræmi við ákvæði lyfjalaga. Hafi ekki verið veitt undanþága frá lágmarksmönnun eða sé undanþága fallin úr gildi, ber að manna lyfjabúðina með eigi færri en tveimur lyfjafræðingum á almennum afgreiðslutíma, og á álagstíma utan almenns afgreiðslutíma.
Komi fram upplýsingar um að ekki sé farið eftir ákvæðum lyfjalaga um lágmarksmönnun í lyfjabúðum, getur Lyfjastofnun brugðist við í samræmi við heimildir sínar samkvæmt 17. kafla lyfjalaga um eftirlit, og 19. kafla sömu laga um þvingunarúrræði.
Umsóknir um undanþágu frá mönnunarkröfu
Sótt er um undanþágu frá mönnunarkröfu með rafrænu eyðublaði á Ísland.is. Hver umsókn er metin sjálfstætt.
Kostnaður
Telji Lyfjastofnun nauðsynlegt að fram fari úttekt vegna mats á umsókn, greiðir umsækjandi kostnað af úttektinni í samræmi við 1. málsgrein 9. greinar núgildandi gjaldskrár. Í slíkum tilvikum er umsækjanda gerð grein fyrir umfangi þeirrar vinnu sem Lyfjastofnun telur að sé nauðsynleg, áður en úttektin fer fram, samanber 2. málsgrein 9. greinar sömu gjaldskrár.
Einnig innheimtir stofnunin gjald fyrir útgáfu leyfis í tengslum við leyfisskylda starfsemi samkvæmt ákvæðum lyfjalaga, sbr. 8. grein gjaldskrár. Gjald vegna útgáfu hvers leyfis er 15.700 kr. samkvæmt gjaldskrá.
Apótek sem fengið hafa undanþágu frá mönnunarkröfu lyfjalaga
Heiti apóteks | Gildistími undanþágu |
|---|---|
Apótekarinn Kirkjusandi | Gildistími undanþágu: 15. október 2027 |
Lyfjaval Suðurfelli | Gildistími undanþágu: 11. apríl 2027 |
Lyfja Skeifunni | Gildistími undanþágu: 11. apríl 2027 |
Siglufjarðar Apótek | Gildistími undanþágu: 15. október 2027 |
Leyfi vegna starfs lyfjafræðinema
Samkvæmt 8. málsgrein 22. grein reglugerðar 1340/2022 um lyfsöluleyfi og lyfjabúðir getur Lyfjastofnun veitt lyfjafræðinema, sem lokið hefur fjórða árs námi í lyfjafræði og tveggja mánaða verknámi í apóteki, leyfi til að gegna afmörkuðum störfum lyfjafræðings tímabundið enda sé slíkt gert á ábyrgð lyfjafræðings viðkomandi apóteks.
Sótt er um á Mínum síðum Lyfjastofnunar.
Lyfjafræðinema er óheimilt að gegna afmörkuðum störfum lyfjafræðings tímabundið nema í viðurvist ábyrgs lyfjafræðings eða staðgengils hans sem einnig skal vera lyfjafræðingur.
Ef Lyfjastofnun veitir umsækjanda heimild til að gegna afmörkuðum störfum lyfjafræðings tímabundið, er viðkomandi gefið leyfisnúmer.
