Veitingaþjónusta Landspítala sér sjúklingum fyrir heildstæðri næringu sem er nauðsynlegur hluti af meðferð. Fæði er valið út frá sjúkdómsástandi og meðferð hvers og eins.
Hér má sjá matseðla helstu fæðisgerða sem í boði eru á Landspítala. Matseðlar annarra fæðisgerða sem og matseðill hvers sjúklings eru aðgengilegir í Landspítala-appinu undir liðnum „Dvölin mín".
Um matseðlana
Boðið er upp á heitan mat í hádeginu og á kvöldin.
Ef þú ert á almennu eða RDS fæði, geturðu valið á milli tveggja rétta í öllum máltíðum.
Ef þú átt erfitt með að borða eða vilt breyta skammti, talaðu við starfsfólk deildarinnar, sem hjálpar þér að finna hvað þú getur borðað eða fær næringarráðgjafa til að aðstoða.
Salt, sykur og sósur eru í boði nema þú sért á sérfæði.
Aðstandendur mega færa þér næringarríkan mat ef þú ert ekki á sérfæði.
Samsetning
Við matseðlagerð á Landspítala er hugað að samspili næringar, bragðs, útlits, gæða, kostnaðar og framleiðslugetu.
Tekið er mið af þörfum sjúklinga og mismunandi aldurs.
Ekki eru notuð matvæli nema fyrir liggi upplýsingar um innihald og næringargildi
Einungis er keypt viðurkennt hráefni.
Matseðill inniheldur ekki mónó sodium glutamat (MSG).
Ofnæmisvaldar
Til að tryggja öryggi þeirra sem eru með ofnæmi eða óþol eru allir réttir á matseðlinum merktir með upplýsingum um ofnæmisvalda:
Gult: Rétturinn gæti innihaldið snefilmagn af ofnæmisvöldum.
Rautt: Rétturinn inniheldur ofnæmisvalda.
Tegundir matseðla
Grunnmatseðill er 5 vikna rúllandi seðill
A = Almennt fæði, sem samanstendur af kjöt- , fisk- og grænmetisréttum.
Ekki er hrásalat með almennu fæði.
A1 = Almennt fæði sem hentar flestum sjúklingum.
A2 = Samanstendur af réttum sem auðvelt er að borða og henta öldruðum. Pasta eða lasagna er ekki á matseðli og einungis einstaka sinnum hrísgrjón. Ávextir eiga að vera mjúkir, svo sem ávaxtasalat, melónur og niðursoðnir ávextir.
A3 = Grænmetisfæði inniheldur egg og mjólkurafurðir og hrásalat fylgir með máltíðinni í hádegi og stundum á kvöldin.
A4 = Matseðill sem er aðlagaður þörfum barna og unglinga. Á matseðli er hrátt grænmeti í hádegi en soðið grænmeti á kvöldin.
M = Almennt fæði, með breyttri áferð eða maukað
Ætlað þeim sem eiga erfitt með að tyggja eða kyngja fæði með venjulegri áferð. Mismunandi er hversu mikið fæðið þarf að vera maukað. Hægt er að velja um þrjár mismunandi áferðir :
RDS = Fæði ætlað sjúklingum með sykursýki, hjartasjúkdóma og ýmsa efnaskiptasjúkdóma
RDS1 og RDS2
Skammtar eru stærri en á almennu fæði en gefa jafn mikla orku.
Í hádegi er hrásalat ásamt soðnu grænmeti með matnum. Eftirréttir eru oftast ávextir.
Ætlað sjúklingum sem eiga við mikla tyggingar- og kyngingarerfiðleika að stríða og einnig fyrst eftir aðgerð.
Fæðið uppfyllir ekki næringarlegar þarfir einstaklingsins og því er það einungis notað í mjög stuttan tíma.
F1 = Fljótandi fæði inniheldur ýmist hafraseyði, ávaxta- og kraftsúpur, mjólkurvörur og næringardrykki. Hægt er að fá fljótandi fæði mjólkurlaust (og sykurlaust ef ósk er um það).
F2 = Tært fljótandi fæði inniheldur ýmist hafraseyði, kjötseyði, ávaxtasúpur og safa.
F3 = Þykkfljótandi fæði inniheldur ýmist hafraseyði, ávaxta- og kraftsúpur, mjólkurvörur og næringardrykki. Hægt er að fá fæðið mjólkurlaust. Fæðið er með þykkari áferð en F1.
F4 =Fljótandi fæði inniheldur kaldar mjólkur- og ávaxtasúpur (TONES).
Fæðið er ætlað 3-5 fyrstu dagana eftir aðgerð á meltingarvegi. Það brúar bilið milli fljótandi fæðis og almenns fæðis.
Fæðið er auðmeltanlegt og trefjasnautt
Forðast er að gefa mat í raspi, nautakjöt, unnar kjötvörur, reyktan og kryddaðan mat. Einnig skyr, hrátt grænmeti og bragðsterkt (rammt) grænmeti, til dæmis maískorn, lauk, baunir og rósakál.
Fæði sem byggir á almennu fæði eins og hægt er og ætlað þeim sem hafa litla matarlyst en þurfa jafn mikla orku og próteinþéttara fæði en almenna fæðið er.
Mikilvægt er að bjóða millibita á deildum á milli máltíða og að sjúklingur biðji um það sem hann getur hugsað sér að borða.
Magn grænmetis er minna en á almennu fæði.
Eftirréttir eru sérlagaðir eða rjómi skammtaður með ef sá á almennu fæði er orkurýr, til dæmis ef um er að ræða ávaxtasalat þá er þeyttur rjómi skammtaður með.
Orku- og próteinþétt fæði er:
afgreitt í einni skammtastærð, um 1.700 he/dag
mikið að ryðja sér til rúms innan spítalans
Dæmi um það er staðlað fæði á krabbameinsdeild 11E.
Fæðið er ætlað sjúklingum með lélega meltingu, skert fitufrásog, lifrarsjúkdóma og stuttan þarm.
Almennt fæði er notað eins mikið og hægt er, þó eru sumar fæðutegundir útilokaðar, eins og unnar kjötvörur.
Sósur eru sérlagaðar í flestum tilfellum.
Fæðið er ætlað sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi og lifrarsjúkdóma.
Magn próteina er mismunandi; 50 g og 60 g og er það ákvarðað af lækni eða næringarráðgjafa.
Almennt fæði er notað eins og hægt er en magn kjöts, fisks, eggja og mjólkurvara er takmarkað.
Meðlætið er það sama og á almennu fæði.
Sósur og eftirréttir eru oft sérlagaðir og þá gjarnan orkubættir með rjóma eða að rjómi er notaður út á.
Fæðið er ætlað sjúklingum með það skerta nýrnastarfsemi að þeir þurfa að fara í blóðskilun reglulega.
Almennt fæði er til grundvallar þessu fæði með undantekningum.
Fæðið er snautt af natríum (salti), kalíum og fosfati sem þýðir að það er ekki boðið upp á banana, apríkósur, kíví, mjólkurafurðir og reykt og saltað kjöt og fisk.
Vökvi er takmarkaður og því eru súpur lítið notaðar.
Eftirréttir eru almennt orkuríkir og til dæmis rjómabættir.
Fæðið er ætlað sjúklingum sem draga þurfa úr saltneyslu sinni, til dæmis vegna hækkaðs blóðþrýstings og hjartasjúkdóma (hjartabilunar).
Almennt fæði er notað eins og hægt er þar sem það er að upplagi lágt í natríum eða < 2000mg.
Eftirréttir eru sérvaldir og sérlagaðir í flestum tilfellum, til dæmis eru kraftsúpur útilokaðar.
Unnar kjöt og fiskvörur eru ekki gefnar og sósur eru sérlagaðar.
Ef einstaklingur þarf sérstaklega saltsnautt fæði ber að panta slíkt í gegnum næringarráðgjafa eða hafa samband við sérfæðisskrifstofu.
Fæðið er ætlað sjúklingum sem eru með bælt ónæmiskerfi vegna hvítblæðis, lyfjameðferðar og/eða geislameðferðar.
Almennt fæði er notað til grundvallar nema sneytt er hjá hráu grænmeti og skornum ávöxtum.
Einungis er boðið upp á soðið grænmeti og ávexti með þykku hýði, til dæmis banana.
Gæta þarf að öllum áhöldum og borðbúnaði sem notaður er við framleiðslu og framreiðslu fæðisins.
Starfsfólk eldhúss hefur sérstakar vinnureglur við meðhöndlun fæðisins og er mikilvægt að starfsfólk deilda viðhafi slíkt hið sama og gæti þess að bakkinn standi ekki opinn eða sé opnaður fyrr en við rúm einstaklingsins.
Fæðið er ætlað þeim sem vilja ekki mjólkureftirrétti.
Almennt fæði er lagt til grundvallar en eftirréttir sem innihalda mjólk eru útilokaðir.
Dæmi um slíka eru vellingar, ís, sumir búðingar og súpur.
Fæðið er ætlað þeim sem eru með mjólkursykursóþol.
Fæðið er í meginatriðum eins og almennt fæði nema það inniheldur fáar eða engar fæðutegundir sem innihalda mjólkursykur.
Síðdegis- og kvöldhressing er sérvalin.
Fæðið er ætlað þeim sem eru með glútenóþol.
Fæðið er í meginatriðum eins og almennt fæði nema það inniheldur engar fæðutegundir sem innihalda glúten.
Síðdegis- og kvöldhressing er sérvalin.
Fæðið er ætlað sjúklingum sem hafa ofnæmi fyrir ýmsum fæðutegundum. Ofnæmisvakar eru mismunandi, þeir algengustu eru: