Almennt um átakið
Lyf án skaða er alþjóðlegt gæðaátak sem hófst á Íslandi árið 2020.
Markmið átaksins
Markmiðið er að draga úr alvarlegum lyfjaskaða, af fyrirbyggjanlegum orsökum, um 50% innan 5 ára. Lögð er áhersla á gæðaumbætur og að:
bæta lyfjaöryggi við flutning upplýsinga og tilfærslu meðferðar innan heilbrigðisþjónustunnar
draga úr óviðeigandi fjöllyfjameðferð.
stuðla að öruggari notkun áhættusamra lyfja.

Ástæða átaksins
Mistök í lyfjaumsýslu eru algeng í heilbrigðiskerfum um allan heim. Þó til séu aðferðir sem draga úr líkum á mistökum, er framkvæmd þeirra er misjöfn.
Áætluð tíðni lyfjamistaka er meira en 50% eftir útskrift af sjúkrahúsi
Eldri sjúklingar, sérstaklega þeir sem taka mörg lyf, eru í meiri hættu á alvarlegum afleiðingum
Aðferð
Með því að mæta eftirfarandi þörfum á Íslandi nást markmið átaksins:
Efling klínískrar lyfjafræðiþjónustu sem víðast í heilbrigðiskerfinu.
Aukin gæði lyfjatengdra ferla.
Hagræðing tæknikerfa fyrir lyfjaupplýsingar (IT).
Efling á stjórnsýslu gæðamála tengt lyfjaumsýslu.
Aukin þjálfun og fræðsla heilbrigðisstarfsmanna um lyfjaöryggi.
Bætt samstarf og upplýsingagjöf til sjúklinga og almennings um lyfjaöryggi.
Mælikvarði á árangri
Starfshópur var skipaður af stýrinefnd Embættis Landlæknis árið 2020 til að þróa gæðavísa (.pdf) til að meta árangur af gæðaátakinu.
Ítarefni
