Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026
27. júlí 2026
Landskjörstjórn hefur birt auglýsingu um að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram 29. ágúst 2026.

Landskjörstjórn hefur birt í Stjórnartíðindum auglýsingu um að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram 29. ágúst 2026 um hvort Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju.
Atkvæðagreiðslan fer fram á grundvelli 2. mgr. 2. gr. kosningalaga nr. 112/2021. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar er ráðgefandi, sbr. 3. mgr. 123. gr. sömu laga. Kosningarrétt við þjóðaratkvæðagreiðsluna eiga þeir kjósendur sem hafa kosningarrétt til Alþingis og við forsetakjör, samkvæmt 3. gr. kosningalaga nr. 112/2021.
Nánari upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðsluna er að finna á kosning.is.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst í dag, 27. júlí 2026. Upplýsingar um hvar hægt er að kjósa utan kjörfundar hér á landi er að finna á vef sýslumanna. Erlendis er hægt að kjósa utan kjörfundar í sendiráðum Íslands og hjá kjörræðismönnum.