Framboð við sveitarstjórnarkosningar
17. apríl 2026
Landskjörstjórn hefur tekið saman upplýsingar um framboð til sveitarstjórnarkosninganna í vor.

Framboðsfrestur vegna framboðs til sveitarstjórnarkosninganna í vor rann út föstudaginn 10 apríl sl. og hafa allar yfirkjörstjórnir sveitarfélaga staðfest framboðslista í sínu sveitarfélagi. Landskjörstjórn hefur tekið saman upplýsingar um framboð til sveitarstjórnarkosninganna sem eru birtar á kosning.is.
Í sveitarstjórnarkosningunum fara fram listakosningar í 50 sveitarfélögum, en 178 framboðslistar eru boðnir fram í þeim. Á þeim framboðslistum eru 3.156 einstaklingar í framboði.
Í sveitarfélögum þar sem engir framboðslistar komu fram verður óbundin kosning. Þar eru allir kjósendur í viðkomandi sveitarfélagi í kjöri nema þeir sem löglega eru undanþegnir skyldu til að taka kjöri og hafa fyrir fram skorast undan því. Óbundin kosning fer fram í sjö sveitarfélögum; Ásahreppi, Dalabyggð, Eyja- og Miklaholtshreppi, Fljótsdalshreppi, Grýtubakkahreppi, Kaldrananeshreppi og Langanesbyggð.
Í Kjósarhreppi, Snæfellsbæ, Tjörneshreppi og Vopnafjarðarhreppi kom einungis fram einn framboðslisti innan framboðsfrests. Verður sá listi því sjálfkjörinn í viðkomandi sveitarfélagi og fara þá ekki fram sveitarstjórnarkosningar þar.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefur hafist hjá sýslumönnum og kjörstjórum erlendis.