Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Fræðsluefni

Líffræðileg fjölbreytni

Líffræðileg fjölbreytni er sá breytileiki sem er að finna innan tegunda, milli tegunda og meðal vistkerfa. Líffræðileg fjölbreytni gefur tegundum og vistkerfum möguleikann á að bregðast við breytingum. Hún er eldsneyti þróunar og undirstaða þess að vistkerfi geti starfað og viðhaldið sér til framtíðar. Fjöldi tegunda eða tegundaauðgi er ein birtingarmynd líffræðilegrar fjölbreytni en það er mikilvægt að ná líka utan um fjölbreytni á öðrum stigum lífríkisins.

Mikilvægi endurheimtar vistkerfa

Endurheimt vistkerfa (vistheimt) er ferli sem stuðlar að bata vistkerfa ef þeim hefur hnignað, þau skemmst eða eyðilagst. Hún hjálpar til við að viðhalda og efla líffræðilega fjölbreytni, bætir vatnsbúskap, stuðlar að jarðvegsvernd og hjálpar til í baráttunni við loftslagsvandann með aukinni kolefnisbindingu. Endurheimt vistkerfa byggist á því að vinna með náttúrunni og styðja vistkerfið í átt að sjálfbærri þróun.

Mikilvægt er að endurheimt vistkerfa sé byggð á vísindalegri þekkingu og tekið sé mið af sértækum aðstæðum á hverju svæði fyrir sig. Ferlið getur tekið langan tíma og tryggja þarf að að komið sé í veg fyrir það rask sem olli hnignuninni í upphafi.

Jarðvegur