Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Kolefnisbókhald

Jarðvegur gegnir mjög mikilvægu hlutverki í kolefnishringrásinni. Með aukinni notkun jarðefnaeldsneytis höfum við losað mikið kolefni sem áður var geymt í jörðu út í andrúmsloftið sem koltvísýring. Þetta kolefni hafði bundist á mjög löngum tíma en af því að við losum það hratt út í andrúmsloftið riðlast jafnvægi efnanna í andrúmsloftinu. Kolefnið losnar hraðar út í andrúmsloftið en kerfi jarðarinnar geta bundið það á hý og þetta veldur hlýnun loftslags. Til að bregðast við þarf bæði að draga úr losun og auka bindingu kolefnis.

Jarðvegur er einn varanlegasti kolefnisgeymirinn sem til er, svo lengi sem jarðveginum er ekki raskað. Með því að binda kolefni í jarðvegi minnkum við magn koltvísýrings í andrúmslofti en um leið eflum við frjósemi jarðvegsins og vatnsmiðlandi eiginleika hans.

Markmiðið er að safna og skrásetja stöðu kolefnisbindingar og losunar gróðurhúsalofttegunda.

Gögnin fara í gagnagátt UNFCCC, rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar. Árlega skilar Umhverfis- og orkustofnun landsskýrslu fyrir hönd Íslands um losun gróðurhúsalofttegunda (National Inventory Report; NIR) til Evrópusambandsins og UNFCCC í samræmi við skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum.

Nánar á vef Umhverfis- og orkustofnunar