Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Fræframleiðsla

Fræverkunarstöðin í Gunnarsholti hefur frá árinu 1988 séð um ræktun og verkun fræja fyrir uppgræðslu. Tvær tegundir eru í framleiðslu til uppgræðsluverkefna, melgresi og túnvingull. Verkun á trjáfræi fer einnig fram í stöðinni.

Fræöflun fer fram síðla sumars og fram á haust.

Túnvingull er ræktaður á ökrum í Gunnarsholti, en melgresi er safnað af strandsvæðum sunnanlands.

Fræið er þurrkað, hreinsað og gæðaprófað samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Rannsóknastofa sér um gæðaeftirlit og veitir einnig þjónustu við fræsala með spírunar- og hreinleikapróf.