Kynbundið ofbeldi
Kynbundið ofbeldi er hvers kyns ofbeldi sem byggir á ójafnvægi milli kynja eða skaðlegum hugmyndum um kynhlutverk. Það getur komið fram á marga vegu, t.d.:
Líkamlegt ofbeldi
– svo sem barsmíðar eða árásir
Andlegt eða tilfinningalegt ofbeldi
– niðurlæging, stjórnsemi, hótanir
Kynferðislegt ofbeldi
– nauðgun, brot á kynfrelsi, óvelkomnar kynferðislegar athafnir
Efnahagslegt ofbeldi
– stjórn á fjármálum, hindra aðgang að peningum eða vinnu
Stafrænt ofbeldi
– svo sem hótanir, áreitni eða dreifing myndefnis án samþykkis
Ofbeldið felst oft í því að gerandinn reynir að stjórna eða brjóta niður hinn aðilann.
Það tengist gjarnan mismunun, fordómum og skaðlegum kynstaðalmyndum.
Kynbundið ofbeldi er algengt vandamál um allan heim. Það birtist á marga vegu og getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir einstaklinga, fjölskyldur og samfélagið. Afleiðingarnar geta verið líkamlegar, andlegar eða efnahagslegar og haft áhrif á líf fólks til lengri tíma.
Jafnréttisstofa gegnir mikilvægu hlutverki í að koma í veg fyrir kynbundið ofbeldi, kynbundna áreitni og kynferðislega áreitni. Stofan vinnur að því í samstarfi við stjórnvöld og samtök sem sérhæfa sig í forvörnum.
Aðstoð og úrræði
Margir aðilar veita aðstoð bæði til þolenda og gerenda kynbundins ofbeldis. Aðstæður fólks eru mismunandi, og því er mikilvægt að kynna sér þau úrræði sem í boði eru til að fá þann stuðning sem hentar hverju sinni.
Upplýsingar um aðstoð og úrræði er hægt að nálgast á heimasíðu Neyðarlínunnar.
