Meinlaust
Meinlaust er vitundarvakning sem varpar ljósi á birtingarmyndir kynbundinnar og kynferðislegrar áreitni og öráreitni sem oft eru taldar saklausar – en hafa í raun skaðleg og víðtæk áhrif.
Kynbundin áreitni er eitt útbreiddasta vandamál heims, birtist á margvíslegan hátt og hefur alvarlegar afleiðingar fyrir einstaklinga, fjölskyldur og samfélagið í heild. Í vitundarvakningunni er sjónum beint að hegðun sem margir telja meinlausa, með það að markmiði að draga fram samfélagslegt mynstur sem er alls ekki jafn saklaust og ætla mætti.
Öráreitni er notað um hversdagslegar athafnir, athugasemdir eða umhverfisþætti sem eru niðrandi eða niðurlægjandi gagnvart jaðarsettum hópum. Þótt slík hegðun virðist smávægileg ein og sér, geta endurteknar upplifanir af öráreitni – jafnvel daglega – aukið álag, gert jaðarstöðu áþreifanlega og haft raunveruleg áhrif á líf fólks.
Öráreitni er stundum sett fram sem hrós og þeir sem beita henni eru ekki alltaf meðvitaðir um afleiðingarnar. Því getur verið erfitt að greina öráreitni og jafnvel enn erfiðara að benda á að hegðun sem virðist saklaus geti haft skaðleg áhrif.
Í vitundarvakningunni eru sagðar sögur byggðar á raunverulegum frásögnum fólks úr íslensku samfélagi í formi myndasagna. Með því verður reynslan sýnilegri og aðgengilegri og auðveldar fólki að spegla sig í aðstæðum sem oft eru afgreiddar sem „meinlausar“.
Markmiðið er að auka samfélagsvitund, hvetja til umræðu og opna augu fólks fyrir birtingarmyndum og afleiðingum áreitni.
Samstarf og áherslur
Vitundarvakningin er unnin í nánu samstarfi við samtök með sérþekkingu á reynslu jaðarsettra hópa. Raunverulegar frásagnir sýna öráreitni gagnvart ólíkum hópum:
Samtökin ’78 – Öráreitni gagnvart hinsegin fólki
Þroskahjálp – Öráreitni, barnvæðing og ableismi í garð fatlaðs fólks
Hennar rödd – Reynsla kvenna af erlendum uppruna af öráreitni
Barnaheill – Öráreitni gagnvart börnum og ungmennum og upplifun þeirra á að hafa ekki rödd.

Kynferðisleg áreitni
Meinlaust er vitundarvakning sem varpar ljósi á birtingarmyndir kynbundinnar og kynferðislegrar áreitni og öráreitni sem oft eru taldar saklausar – en hafa í raun skaðleg og víðtæk áhrif.

Öráreitni gagnvart hinsegin
Öráreitni er notað um hversdagslegar athafnir, athugasemdir eða umhverfisþætti sem eru niðrandi eða niðurlægjandi gagnvart jaðarsettum hópum.

Öráreitni gagnvart fötluðu fólki
Fatlað fólk verður oft fyrir öráreitni sem lýsir sér meðal annars með að talað er um og við fullorðið fatlað fólk eins og það sé börn. Hugtakið barnvæðing er notað yfir slíka framkomu. Barnvæðing felur í sér hugmyndir um að fatlað fólk sé ekki hæft til að taka ákvarðanir í eigin lífi.

Öráreitni gagnvart konum af erlendum uppruna
Í vitundarvakningunni eru raunverulegar frásagnir kvenna af erlendum uppruna á Íslandi endursagðar í formi myndasagna. Í sögunum sést lítið brot af þeirri öráreitni sem konurnar verða fyrir, sem getur haft skaðleg, varanleg og hættuleg áhrif.

Öráreitni gagnvart börnum og ungmennum
Börn upplifa oft að þau hafi ekki rödd, að horft sé fram hjá þeim og þeim sagt hvernig þau eigi að vera eða ekki vera. Myndirnar í Meinlaust draga fram þessa birtingarmynd, fullorðnir sjást sem skipandi og ráðandi skuggar meðan börnin hugsa og rödd þeirra er þögul.
