Fara beint í efnið
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða

Barna- og fjölskyldustofa

Umdæmisráð barnaverndar

Umdæmisráð eru stjórnsýslunefndir sem fara með úrskurðarvald í ákveðnum barnaverndarmálum á vettvangi sveitarfélaga. Umdæmisráðin eru skipuð til fimm ára, eru sjálfstæð í störfum sínum, standa utan við almenna stjórnsýslu sveitarfélaga og ráðsmenn taka ekki við fyrirmælum um meðferð einstakra mála. Umdæmisráð eru skipuð þremur ráðsmönnum sem hafa ákveðna fagþekkingu, þ.e. félagsráðgjafa, sálfræðingi og lögfræðingi, og skulu þeir hafa í það minnsta þriggja ára starfsreynslu í barnavernd.

Þvingunarúrræði, það eru mál sem ekki hefur náðst að vinna í samvinnu eru dæmi um mál sem fara fyrir umdæmisráð skv. Lögum nr. 80/2002 t.d. ef

  • Fjarlægja þarf barn af heimili

  • Úrskurðir um umgengni barns í fóstri við foreldra

  • Ef höfða þarf mál fyrir dómstólum

Sjá nánar 13.gr. barnaverndarlaga þar sem fjallað er um hlutverk umdæmisráða

Umdæmisráð

Skipan umdæmisráða

Skipan umdæmisráða felur í sér veigamikið nýmæli enda hefur löggjöf um sveitarstjórnarstigið fram til þessa ekki gert ráð fyrir skipun sjálfstæðra stjórnsýslunefnda. Að meginstefnu til eru umdæmisráðum barnaverndar falin þau verkefni sem barnaverndarnefndir fara með að gildandi lögum og hafa ekki heimildir til að framselja til starfsmann. Samkvæmt skýringum í greinargerð er litið svo á að starfsemi umdæmisráða fari fram á sama stjórnsýslustigi og önnur stjórnsýsla sveitarfélaga og að umdæmisráð teljist því ekki æðri stjórnvöld gagnvart sveitarfélögunum þ.m.t. barnaverndarþjónustunni. Í greinargerð segir jafnframt að ákvæði sveitarstjórnarlaga um nefndir, ráð og stjórnir, starfsmenn sveitarfélaga og samvinnu þeirra gildi ekki um starfsemi umdæmisráða. Um þau gildi aftur á móti almennar reglur um starfsemi fjölskipaðra stjórnvalda, þ.m.t. stjórnsýslulög.