Fara beint í efnið
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða

Barna- og fjölskyldustofa

Málstjórar í þjónustu í þágu farsældar barna

Ef fyrir liggur beiðni foreldra og/eða barns um samþættingu þjónustu og ástæða er til að ætla að barn þurfi fjölþætta þjónustu á öðru og/eða þriðja stigi til lengri tíma skal sveitarfélag þar sem barn á lögheimili tilnefna málstjóra þjónustu í þágu farsældar barnsins. Sveitarfélag skal velja málstjóra sem starfar við félagsþjónustu sveitarfélagsins eða á þeim sviðum þar sem þarfir barns liggja. Málstjóri skal hafa þekkingu á þjónustu í þágu farsældar barna. 

Málstjóri farsældar er:

  • Starfsmaður sem starfar við félagsþjónustu sveitarfélagsins eða þar sem
    þarfir barns liggja

  • Sá sem stýrir stuðningsteymi á öðru og/eða þriðja stigi þjónustu í þágu
    farsældar barna

  • Sá sem styður fjölskyldur við samþættingu þjónustu á öðru og þriðja stigi

  • Aðili sem hefur hagsmuni barns að leiðarljósi og er í samstarfi og samráði
    við foreldra og barn.

Hlutverk málstjóra farsældar er að:

  • Veita ráðgjöf og upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns.

  • Aðstoða við að tryggja aðgang að mati og/eða greiningu á þörfum barns.

  • Bera ábyrgð á gerð stuðningsáætlunar og að stýra stuðningsteymi.

  • Fylgja því eftir að þjónusta sé veitt í samræmi við stuðningsáætlun.

  • Veita þeim sem sitja í stuðningsteymi ráðgjöf og upplýsingar um
    samþættingu þjónustu barns.

Áður en málstjóri byrjar að veita þjónustu skv. 1. mgr. skal liggja fyrir beiðni
foreldra og/eða barns um samþættingu þjónustu. Þegar beiðni liggur fyrir getur
málstjóri aflað upplýsinga um aðstæður barns frá þjónustuveitendum og þeim
sem veita almenna þjónustu í þágu farsældar barns.

Stuðningsteymi og stuðningsáætlun

  • Málstjóri skal stofna stuðningsteymi þar sem sitja fulltrúar
    þjónustuveitenda sem veita barni þjónustu. Heimilt er að bjóða þeim sem
    veita almenna þjónustu í þágu farsældar barns að taka sæti í
    stuðningsteymi ef þörf krefur.

  • Stuðningsteymi skal hafa hagsmuni barnsins að leiðarljósi og rækja
    hlutverk sitt í samstarfi og samráði við foreldra og barn. Foreldrar og eftir
    atvikum barn eru hluti af stuðningsteyminu, sitja fundi þes sog taka þátt í
    gerð stuðningsáætlunar.

  • Stuðningsteymi skal svo fljótt sem verða má gera skriflega
    stuðningsáætlun fyrir barnið þar sem þjónusta sem er veitt í þágu
    farsældar barnsins er samþætt. Í stuðningsáætlun skal eftir atvikum geta
    um:

  1. Mat og/eða greiningu á þörfum barns.

  2. Markmið með þjónustu og samþættingu einstakra þátta hennar á öllum
    þjónustustigum.

  3. Hlutverk hvers þjónustuveitanda og annarra eftir atvikum.

  4. Hvernig árangur verði metinn.

  5. Tímabil sem áætlun er ætlað að vara

  • Stuðningsteymi hefur reglubundna samvinnu um framkvæmd
    stuðningsáætlunar þann tíma sem áætlun varir. Hana ber að endurmeta
    og endurnýja eftir því sem þörf krefur. Áður en barn verður 18 ára skal
    stuðningsteymi gera áætlun þar sem fjallað er um samþættingu þjónustu
    fyrir barnið eftir að það nær fullorðinsaldri.


Ef stuðningsteymi lýkur störfum án þess að gera stuðningsáætlun skal tilkynna
foreldrum barns og tengilið niðurstöðu teymisins og veita samhliða rökstuðning
fyrir henni. Foreldri getur beint kvörtun yfir niðurstöðu stuðningsteymis um að
ljúka störfum án stuðningsáætlunar til Gæða- og eftirlitsstofnunar
velferðarmála.

Ráðgjöf BOFS

Ráðgjafar Barna- og fjölskyldustofu veita fagaðilum sem vinna með börnum og/eða hjá barnaverndum upplýsingar og ráðgjöf.