Fara beint í efnið
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða

Barna- og fjölskyldustofa

Hlutverk Barna- og fjölskyldustofu

Barna- og fjölskyldustofa er ríkisstofnun sem heyrir undir mennta- og barnamálaráðherra og starfar á grundvelli laga nr. 87/2021. BOFS styður við þjónustu sem veitt er hjá sveitarfélögum um land allt auk þess að vinna að innleiðingu á samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Á grundvelli barnaverndarlaga hefur BOFS yfirumsjón með rekstri meðferðarheimila ríkisins, Barnahúss auk annarra úrræða sem styðja við vinnslu barnaverndarmála. Þá veitir BOFS barnaverndarþjónustum liðisinnis í fósturmálum með því að þjálfa, fræða og styðja við fósturforeldra.

BOFS sinnir einnig ýmsum tilfallandi verkefnum í þágu velferðar barna auk þess að stuðla að gæðaþróun í samræmi við bestu þekkingu og reynslu á hverjum tíma.

Verkefni Barna- og fjölskyldustofu

  • Almenn og sérhæfð fræðsla til stjórnvalda og annarra.

  • Útgáfa leiðbeininga, gátlista og annars stuðningsefnis.

  • Leiðbeiningar og ráðgjöf um vinnslu einstakra mála.

  • Þróun og innleiðing gagnreyndra aðferða og úrræða í þágu barna.

  • Uppbygging og yfirstjórn heimila, stofnana og sérhæfðra úrræða fyrir börn.

  • Fræðilegar rannsóknir sem þjóna markmiðum laga þessara og stuðningur við þróunar- og rannsóknarstarf.

  • Vinnsla upplýsinga, þ.m.t. söfnun og skráahald.

  • Önnur verkefni sem er kveðið á um í lögum eða eru falin stofnuninni samkvæmt ákvörðun ráðherra.

Barnaverndarlög og skyldur

  • Vinna að samhæfingu og eflingu barnaverndarstarfs í landinu, m.a. með því að stuðla að samþættingu barnaverndarstarfs og annarrar þjónustu í þágu barna.

  • Veita barnaverndarþjónustum leiðbeiningar og ráðgjöf um framkvæmd barnaverndarlaga og vinnslu einstakra mála.

  • Stuðla að því að vinnsla barnaverndarmála sé í samræmi við lög, reglugerðir og leiðbeiningar.

  • Veita barnaverndarþjónustum liðsinni í fósturmálum skv. XII. kafla

  • Fara með yfirstjórn heimila og stofnana sem ríkinu ber að sjá til að séu tiltæk skv. XIII. kafla og hlutast til um að slík heimili og stofnanir verði sett á fót

  • Hafa yfirumsjón með vistun barna á heimilum og stofnunum, sbr. e-lið.

  • Fara með yfirstjórn barnahúsa og hlutast til um að þau verði sett á fót eftir því sem þörf krefur.