Fara beint í efnið
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða

Barna- og fjölskyldustofa

Handleiðsla og faglegur stuðningur vegna barna sem þurfa sérstaka umönnun og þjálfun á fósturheimili

Handleiðsla og faglegur stuðningur við barn í fóstri, fósturforeldra, foreldra barns og aðra mikilvæga aðila í umhverfi barnsins þegar barn þarf sérstaka umönnun og þjálfun á fósturheimili.

Hvað felst í þjónustunni?

Markmið þjónustunnar er að stuðla að auknum stöðugleika í lífi barna í fóstri, styrkja fósturforeldra, foreldra og/eða aðra umönnunaraðila í mikilvægu hlutverki sínu, efla samstarf þeirra aðila sem koma að málefnum barna í fóstri og samþætta vinnu þeirra, allt eftir þörfum og markmiðum hvers máls fyrir sig. Á sama tíma er unnið að því að styðja við og efla styrkleika og hagnýtafærni barnsins svo það geti tekist á við áskoranir daglegs lífs á árangursríkan hátt. Þjónusta handleiðsluteymis felst í mati og afgreiðslu umsókna og markvissri faglegri vinnu með barninu, fósturforeldrum, foreldrum þess og öðrum sem hafa áhrif á stöðu barnsins. Vinnan felst meðal annars í handleiðslu, fræðslu, kortlagningu, markmiðasetningu, þróun og eftirfylgd inngripa og undirbúningi þess að gagnlegar aðferðir og verkfæri fylgi barninu þegar það snýr aftur til foreldra eða flyst í aðra varanlega búsetu. Handleiðslan og stuðningurinn felur m.a. í sér:

  • Reglulega handleiðslu og ráðgjöf til fósturforeldra

  • Samtal við barnið

  • Samráð og samvinnu við barnaverndarþjónustu

  • Samvinnu við foreldra og/eða aðra umönnunaraðila barns eins og markmið málsins krefjast og stuðning við undirbúning þess að barnið snúi aftur við lok fósturs

  • Samráð og samvinnu við skóla, heilbrigðisþjónustu og aðra sem koma að þjónustu við barnið

Fyrir hvaða börn er þjónustan?

Meginmarkhópur þjónustunnar eru börn sem þurfa sérstaka umönnun og þjálfun á fósturheimili skv. 4. mgr. 65. gr. bvl. Þegar sérstakar aðstæður eru fyrir hendi, getur teymið tekið til mats önnur fósturmál þar sem markviss vinna er talin geta stuðlað að stöðugleika og dregið úr líkum á ótímabærum fósturlokum.

Hvernig fer vinnan fram?

Sérfræðingur handleiðsluteymis leiðir þá faglegu vinnu sem teymið tekur að sér og stuðlar að því að þátttakendur vinni að sameiginlegum markmiðum. Vinnan tekur mið af þörfum, styrkleikum og aðstæðum barnsins. Vinnan felur í sér samtöl við barnið, handleiðslu og fræðslu fósturforeldra, vinnu með foreldrum og samvinnu við barnaverndarþjónustu. Að auki vinnur sérfræðingur handleiðsluteymis með öðrum lykilaðilum í umhverfi barnsins eins og öðrum umönnunaraðilum, félagahópi, skóla og tómstundum. Í hverju máli er gerð áætlun þar sem markmið, íhlutun og fyrirkomulag eftirfylgdar eru skilgreind. Jafnframt er hlutverk og ábyrgð hvers og eins þátttakanda skilgreint. Reglulega er farið yfir stöðuna og metið hvað gengur vel og hvort þörf sé á breyta eða eflastuðninginn. Öll mál eru samþætt og er horft til stuðningsáætlunar og samþættrar vinnu allra kerfa er koma að barninu.

Hlutverk fósturforeldra

Fósturforeldrar eru lykilaðilar í þessari vinnu. Á meðan fóstrinu stendur eiga fósturforeldrar reglulega fundi með sérfræðingi handleiðsluteymis þar sem farið er yfir líðan og stöðu barnsins, framvindu málsins og þær áskoranir sem kunna að koma upp. Áhersla er lögð á að finna leiðir sem styðja við þroska og líðan barnsins og aðlaga stuðning að breyttum þörfum eftir því sem við á. Fósturforeldrar eru virkir þátttakendur í að prófa þær aðferðir og verkfæri sem ákveðið er að vinna með. Framvinda er metin reglulega og markmið og næstu skref endurskoðuð eftir þörfum. Markmiðið er að efla færni og öryggi fósturforeldra í daglegri umönnun barnsins og að þeir standi ekki einir frammi fyrir þeim áskorunum sem geta fylgt því að annast barn með auknar stuðningsþarfir heldur hafi aðgang að sérhæfðri þekkingu og samvinnu á meðan fóstrinu stendur.

Hlutverk foreldra

Í aðdraganda vistunar og á meðan vistun stendur vinnur sérfræðingur handleiðsluteymis með foreldrum og/eða öðrum umönnunaraðilum. Í aðdraganda vistunar eru foreldrar afar mikilvægur þáttur í að veita upplýsingar um stöðu barnsins sem nýtist við að greinar þarfir barnsins og setja upp markmið vistunar. Á meðan vistun stendur styður sérfræðingur handleiðsluteymis foreldra við að skilja þarfir barnsins og efla færni þeirra til að geta mætt þörfum þess. Þegar stefnt er að því að barn snúi aftur til foreldra styður sérfræðingur handleiðsluteymis þau í að tileinka sér þær aðferðir, venjur og verkfæri sem hafa reynst gagnleg í vistun og talið er nauðsynlegt að yfirfærist á heimili barns. Jafnframt eru gerð plön með foreldrum með það að markmiði að árangur vinnunnar viðhaldist eftir að barnið kemur aftur. Sérfræðingur handleiðsluteymis metur í samráði við foreldra og barnaverndarþjónustu hvaða þjónusta og stuðningur þurfi að vera til staðar svo meiri líkur séu á að sá stöðugleiki sem náðst hefur geti haldist.

Hlutverk barnaverndarþjónustu

Handleiðsluteymið kemur inn sem viðbótarstuðningur og samstarfsaðili. Barnaverndarþjónustan fer áfram með mál barns í fóstri og ber ábyrgð á lögbundinni málsmeðferð, ráðstöfunum, áætlunum, eftirfylgd og vali á fósturforeldrum í samráði við Barna- og fjölskyldustofu. Handleiðsluteymið tekur því ekki yfir málstjórn eða lögbundna ábyrgð barnaverndarþjónustunnar.