Viðmið fyrir fósturforeldra sem sinna sérstakri umönnun og þjálfun á fósturheimili
Fósturforeldrar sem sinna sérstakri umönnun og þjálfun á fósturheimili skulu:
Vera með gilt fósturleyfi frá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála sem nær yfir gildistíma fóstursamnings.
Hafa lokið fósturforeldranámskeiði á vegum Barna- og fjölskyldustofu.
Hafa lokið rafrænni fræðslu á Fræðslutorgi BOFS áður en fóstur hefst.
Hafa að lágmarki eins árs reynslu af umönnun barna í fóstri eða sambærilega reynslu úr öðrum störfum áður en þeir taka að sér barn í sérstaka umönnun og þjálfun.
Sækja sér viðeigandi fræðslu með hliðsjón af þörfum barns, meðal annars um áföll, hegðunarvanda, sérþarfir og þroskafrávik.
Vera reiðubúnir að tileinka sér nýja þekkingu, aðferðir og leiðbeiningar sérfræðinga.
Vera tilbúnir að takast á við krefjandi aðstæður og sinna þeirri sjálfsrækt og stuðningsleit sem nauðsynleg er til að viðhalda eigin færni og velferð.
Við mat á hæfni til að taka að sér fleiri en eitt barn í sérstakri umönnun og þjálfun er jafnframt horft til reynslu, þekkingar og viðbótarfræðslu fósturforeldra.
Fósturheimili skal bjóða upp á stöðugt, öruggt og þroskavænlegt umhverfi sem mætir þörfum barnsins. Fósturforeldrar skulu:
Hafa aðstæður sem gera þeim kleift að sinna barni með auknar umönnunar- og stuðningsþarfir.
Geta sett þarfir barnsins í forgang og lagað daglegt líf að þörfum þess eftir atvikum.
Veita skýra umgjörð, fyrirsjáanleika og festu í uppeldi og umönnun.
Taka mið af aldri, þroska, getu og einstaklingsbundnum þörfum barnsins.
Búa í samfélagi þar sem aðgengi er að þeirri sérfræðiþjónustu sem barnið þarfnast.
Geta mætt krefjandi hegðun, byggt upp styrkleika barnsins og sýnt bæði sveigjanleika og festu í umönnun sinni.
Samsetning heimilis
Æskilegt er að tveir fósturforeldrar séu á heimilinu.
Að jafnaði skulu ekki búa fleiri en fimm börn á heimilinu, þar með talin eigin börn fósturforeldra.
Þarfir barna í sérstakri umönnun og þjálfun geta kallað á að engin önnur börn búi á heimilinu.
Einstætt fósturforeldri skal að jafnaði ekki hafa fleiri en tvö börn í sérstakri umönnun og þjálfun.
Framangreind viðmið eru hámarksviðmið. Við mat á fjölskylduaðstæðum er ávallt horft til samsetningar barnahóps, aldurs barna og stuðningsþarfa þeirra hverju sinni.
Fagleg vinna á heimili
Fósturforeldrar skulu veita barninu sérstaka umönnun og þjálfun samhliða daglegri umönnun. Markmið umönnunarinnar er að stuðla að öryggi og stöðugleika. Fósturforeldrar skulu:
Hafa hagsmuni barnsins ávallt að leiðarljósi.
Vinna markvisst að því að draga úr hegðunarvanda og stuðla að stöðugleika sem hægt er að viðhalda til lengri tíma.
Styðja barnið við að skilja og vinna úr þeim þáttum sem liggja að baki krefjandi hegðun.
Kenna barninu leiðir til að takast á við tilfinningar og draga úr stigmögnun hegðunar.
Efla styrkleika barnsins og stuðla að jákvæðri sjálfsmynd þess.
Þjónustuþörf barns liggur ekki alltaf fyrir við upphaf fósturs. Fósturforeldrar skulu því vera undir það búnir að þjónustu- og stuðningsþörf barns geti reynst meiri eða sértækari en upphaflega var talið. Þeir skulu jafnframt geta:
Sinnt auknu vinnuframlagi vegna sérþarfa barns.
Fylgt barninu í meðferðir og aðra sérfræðiþjónustu.
Framfylgt aðferðum og ráðleggingum fagaðila.
Tekið þátt í reglulegu samstarfi við þá sem vinna að málefnum barnsins.
Í sumum tilvikum getur þetta kallað á skert starfshlutfall eða tímabundna forgangsröðun umönnunar barns fram yfir aðra atvinnuþátttöku. Samstarf við fagaðila
Fósturforeldrar skulu:
Vinna samkvæmt þeim áætlunum sem liggja fyrir í máli barnsins.
Taka virkan þátt í stuðningsteymi barnsins.
Fylgja eftir leiðbeiningum og ráðgjöf fagaðila.
Vera tilbúnir til aksturs og ferðalaga sem tengjast þjónustu við barnið.
Samstarf við skóla
Fósturforeldrar skulu eiga virkt samstarf við skóla eða skólaúrræði barnsins. Ef barn getur ekki sótt skóla tímabundið eða til lengri tíma skulu fósturforeldrar geta sinnt því á skólatíma og unnið með skóla og öðrum þjónustuaðilum að viðeigandi úrræðum. Samstarf við upprunafjölskyldu Fósturforeldrar skulu:
Leggja áherslu á jákvæð og uppbyggileg samskipti við foreldra barns og aðra nákomna.
Styðja tengsl barns við foreldra og aðra í upprunafjölskyldu eftir því sem við á.
Aðstoða barnið við tilfinningalega úrvinnslu sem tengist umgengni og fjölskyldutengslum.
Miðla upplýsingum um þarfir barnsins og árangursríkar leiðir í umönnun þess til barnaverndarþjónustu, foreldra og annarra sem koma að málefnum barnsins, eftir því sem við á.
Fósturforeldrar skulu þiggja handleiðslu samkvæmt mati barnaverndarþjónustu og Barna- og fjölskyldustofu. Handleiðsla hefst við upphaf samningstíma og er umfang hennar ákveðið með hliðsjón af stuðningsþörf barns og fósturforeldra hverju sinni. Markmið handleiðslunnar er að:
Styðja fósturforeldra við framkvæmd markmiða og áætlana í máli barnsins.
Efla færni þeirra til að mæta þörfum barnsins.
Stuðla að farsæld og stöðugleika í fóstrinu.
Meta þörf fyrir frekari fræðslu, ráðgjöf og stuðning.
Fósturforeldrar skulu eiga góða samvinnu við handleiðara og taka þátt í handleiðslu samkvæmt handleiðslumódeli BOFS. Sérfræðingar Barna- og fjölskyldustofu meta jafnframt þörf fyrir viðbótarfræðslu og annan faglegan stuðning eftir atvikum.
