Frumvarp Þorsteins Víglundssonar, félags- og jafnréttismálaráðherra, sem kveður á um lögfestingu skyldu til jafnlaunavottunar meðal fyrirtækja með 25 eða fleiri starfsmenn hefur verið lagt fram á Alþingi. Meginmarkmið frumvarpsins er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.
Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, segir einkar ánægjulegt að leggja fram þetta mikilvæga mál: „Ég bind miklar vonir við að jafnlaunavottun verði raunverulegt tæki til að sporna við kynbundnum launamun sem er því miður enn veruleiki á Íslandi.“