Ljóðaflóð er skemmtileg ljóðasamkeppni sem Miðstöð menntunar stendur fyrir í samstarfi við KrakkaRÚV. Við hvetjum kennara til að hjálpa nemendum að virkja sköpunarkraftinn og senda inn ljóð á fjölbreyttu formi. Það geta verið bundin ljóð og óbundin, ferskeytlur, limrur, hækur, tönkur og myndljóð – sannkallað ljóðaflóð!
Skilafrestur er til og með 17. desember næstkomandi.