Sjónvarpsþáttaröðin HVERS VEGNA EKKI?! - frábærir framhaldsþættir sem slegið hafa í gegn víða í Evrópu og hafa hlotið fjölda viðurkenninga.
Hvers vegna ekki?! fjallar um ævintýralegt ferðalag Önnu Sooväli frá því að vera bekkjarlúðinn í að verða hin ofursvala rappstjarna NoJik. Auk þess fáum við að fylgjast með fjölskyldu- og félagslífi Önnu, sem er vægast sagt viðburðaríkt. Hver þáttur er u.þ.b. 28 mínútur og þættirnir eru 10 talsins og eru textaðir á íslensku.