Viðamikil óháð úttekt fyrirtækisins GOPA á starfi GRÓ-skólanna á árunum 2018-2023, það er Jafnréttisskólans, Jarðhitaskólans, Landgræðsluskólans og Sjávarútvegsskólans, staðfestir góðan árangur af starfi þeirra. Þátttakendur þakka gjarnan velgengni sína í starfi þjálfuninni hjá GRÓ Í úttektinni eru lagðar fram 37 tillögur til úrbóta er varða skólana og GRÓ-miðstöðina. Frá þessu segir á vef Stjórnarráðsins.