10000 leitarniðurstöður
Hlutfall þeirra sem hafa farið í ljós síðustu 12 mánuði á Íslandi er nú 5% og er það einu prósentustigi lægra en í síðustu könnun sem gerð var 2022. Þetta sýna nýlegar niðurstöður könnunar á notkun ljósabekkja á Íslandi sem Gallup gerði fyrir samstarfshóp Geislavarna, Embættis Landlæknis, húðlækna og Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins. Einnig fækkar ljósabekkjum á Íslandi skv. síðastu talningu Geislavarna á fjölda ljósabekkja sem gerð var 2023. Þá var fjöldi ljósabekkja á Íslandi 86 en til samanburðar var fjöldinn 97 árið 2020. Geislavarnir ráða fólki frá því að nota ljósabekki enda fylgir notkun þeirra aukin hætta á húðkrabbameini.
Gervigreindartólið Skríban umbreytir tali læknis í nótu svo læknar geti eytt meiri tíma með hverjum skjólstæðingi. Prófanir á Skríbunni eru nú hafnar hjá HSN á Akureyri.
Í dag, 24. október, á alþjóðlegum degi tileinkuðum mænuveiki, leggjum við áherslu á mikilvægi bólusetninga og vöktunar til að ná settu markmiði að útrýma mænuveiki á heimsvísu. Markmið sem Alþjóðaheilbrigðisþingið setti árið 1988.