10000 leitarniðurstöður
Skráð atvinnuleysi í apríl var 4,6% en var 4,8% í mars. Í apríl 2025 var atvinnuleysið hins vegar 3,9%.
Gefin hefur verið út gul viðvörun um hættulegt efni í umferð, eða falsað Xanax/alprazólma, en um það má lesa á heimasíðu heilbrigðisráðuneytisins. Þar eru birtar viðvaranir starfshóps um samræmingu gagna og snemmbúnar viðvaranir um fölsuð lyf/fíkniefni sem geta ógnað lífi og heilsu fólks.
Fyrri hluta inntökuprófa í lögreglufræði er nú lokið en þau annast Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu í samstarfi við Háskólann á Akureyri.
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit í Austurbergi, Skyggnisbraut, Dalsmára, Réttarholtsvegi, Stóragerði, Digranesvegi, Vesturgötu og Urriðaholtsvegi.
Nemendur í 5. og 6. bekk í Stórutjarnaskóla tóku síðastliðið haust þátt í Bókmenntahátíð barnanna, þar sem nemendur sömdu og skrifuðu sínar eigin bækur.
Stjórnendur og sérfræðingar frá Samtökum norrænna háskólasjúkrahúsa (Nordic University Hospital Alliance, NUHA), sem samanstendur af háskólasjúkrahúsum í Reykjavík, Osló, Kaupmannahöfn, Stokkhólmi og Helsinki, komu saman í Osló dagana 4.–5. maí sl. á árlegum leiðtogafundi NUHA.
Ný skýrsla sem unnin var á vettvangi norræns samstarfs um fyrstu 1000 daga barnsins beinir kastljósi að mikilvægi þess að greina áhættuþætti snemma og tryggja fjölskyldum aðgang að viðeigandi stuðningi og þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á fjölskyldur sem standa frammi fyrir margþættum áskorunum.
ÖBÍ réttindasamtök hefur birt myndbandskynningu á barnabókinni PóGó og prumpið sem bjargaði heiminum og kennsluleiðbeiningum sem fylgja efninu. Verkefnið er samstarf ÖBÍ og Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.
Í vikunni undirrituðu Alþýðusamband Íslands og Þjóðskjalasafn Íslands samning um skil á pappírsskjalasafni ASÍ til safnsins. Afhendingin inniheldur málasafn ASÍ frá 1967-2022. Með afhendingunni er varðveisla mikilvægra heimilda um starfsemi sambandsins og sögu íslenskrar verkalýðshreyfingar tryggð.
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Suðurgötu, Fossvogsvegi, Hamrahlíð, Nesvegi, Álfheimum, Lyngási og Vesturbergi.