Búast má við mikilli umferð við kirkjugarða á höfuðborgarsvæðinu á Þorláksmessu og aðfangadag, en kirkjugarðarnir eru jafnframt opnir og aðgengilegir allan sólarhringinn yfir hátíðirnar. Lögreglan mun fylgjast sérstaklega með umferð við Fossvogskirkjugarð og Gufuneskirkjugarð á aðfangadag og greiða fyrir umferð eins og hægt er.