HSN á Akureyri hefur á örfáum árum orðið sífellt vinsælli valkostur fyrir unga lækna sem vilja sérhæfa sig í heimilislækningum. Góður vinnustaður og aðstæður, hlýtt samfélag og lífsgæði – allt small þetta saman fyrir Reykvíkinginn og sérnámslækninn Ólöfu Kristínu Þorsteinsdóttur og fjölskyldu.