Fara beint í efnið

12. maí 2026

Viltu vera MEMM?

MEMM er þróunarverkefni þar sem unnið er að því að efla menntun og þjónustu fyrir börn og ungmenni með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Hluti af verkefninu er MEMM-vefurinn þar sem kennarar og starfsfólk í skóla- og frístundastarfi geta nálgast fjölbreytt og hagnýt verkfæri til að styðja við inngildandi starf.

Markmið MEMM eru meðal annars að:

  • tryggja virka þátttöku allra barna og ungmenna og aðgengi að gæðamenntun óháð tungumála- og menningarbakgrunni

  • stuðla að samræmdu verklagi um móttöku, menntun og þjónustu

  • þróa öfluga ráðgjöf, námsgögn og verkfæri fyrir inngildandi skóla- og frístundastarf

Á MEMM-vefnum er efni flokkað út frá þremur meginstoðum verkefnisins:

Menntun

Undir liðnum menntun er að finna efni sem tengist menningarnæmum kennslu- og starfsháttum með áherslu á máltöku og þróun tungumáls.

Móttaka

Undir liðnum móttaka er fjallað um mikilvægi markvissrar móttöku barna og ungmenna, mat á stöðu þeirra og styrkleikum, sem og gagnvirkt samstarf við fjölskyldur.

Menning

Undir liðnum menning er safnað saman verkfærum og stuðningsefni sem styður við örugga, inngildandi menningu og jákvæð samskipti í starfi með öllum börnum og ungmennum.

MEMM-vefurinn er lifandi vettvangur sem er í stöðugri þróun og reglulega bætast við ný verkfæri, fræðsla og stuðningsefni. Það er því tilvalið að fylgjast með því sem þar er í boði og nýta efnið í daglegu starfi.

Sjá nánar á MEMM-vefnum.