Fimmtudaginn 25. júní 2020 sendi Persónuvernd bréf til Íslenskrar erfðagreiningar vegna deilingarhnapps frá Facebook á niðurstöðusíðu rannsóknar fyrirtækisins á erfðum persónuleikaþátta og vegna notkunar fyrirtækisins á Facebook til að hvetja almenning til þátttöku. Í bréfinu kemur fram að Íslensk erfðagreining hafi gert grein fyrir því í umsókn sinni um rannsóknina að þátttaka yrði öllum opin á Netinu og að mögulega yrði á einhverjum tíma óskað eftir þátttakendum meðal almennings með auglýsingum og umfjöllun í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum. Persónuvernd hafi hins vegar ekki gert sér grein fyrir því, í ljósi þessarar umfjöllunar, hvað í því fólst. Hefði svo verið, hefði Persónuvernd kallað eftir frekari upplýsingum og gögnum og mun gera það framvegis við yfirferð umsókna um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði ef fyrirhugað er að notast við samfélagsmiðla með einhverjum hætti. Bréf Persónuverndar má sjá hér að neðan.<br>