Innritun í 1. bekk grunnskóla, sem hófst í febrúar, fer nú í fyrsta sinn fram með miðlægum hætti á ísland.is þar sem innritunargögn/umsóknir enda í nýjum Nemendagrunni. Þetta markar þau tímamót að í fyrsta skipti er hægt að fylgjast með því á landsvísu að öll börn á skólaskyldualdri séu í skóla og tryggja að mikilvæg gögn fylgi barninu í gegnum alla skólagönguna. Með tilkomu Nemendagrunns er jafnframt lagður grunnur að gagnadrifnu menntakerfi þar sem ákvarðanir um skólastarf, stuðning og stefnumótun byggjast á heildstæðum og áreiðanlegum gögnum.