Mikilvægum áfanga í húsnæðismálum Þjóðskjalasafns hefur nú verið náð með opnun nýs varðveisluhúsnæðis í Sundaborg í Reykjavík. Húsnæðið rúmar 14 hillukílómetra af skjölum sem komið er fyrir í tvílyftu rafdrifnu hillukerfi sem er hið fyrsta sinnar tegundar á landinu. Sigrún Brynja Einarsdóttir, ráðneytisstjóri í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti opnaði húsnæðið formlega og flutti ávarp ásamt Hrefnu Róbertsdóttur þjóðskjalaverði við stutta athöfn föstudaginn 13. júní. Einnig flutti ávarp við tilefnið Kristján Þorvaldsson sviðsstjóri rekstrar á Þjóðskjalasafni.