Hinn 8. febrúar 2021 sendi Persónuvernd bréf til
Arion banka hf. þar sem fjallað var um stöðu persónuverndarfulltrúa bankans, en
regluvörður gegnir því hlutverki. Í bréfinu eru samskipti aðila rakin og komist
að þeirri niðurstöðu að Arion banki hf. hafi gripið til ýmissa ráðstafana sem
ætlað sé að tryggja að persónuverndarfulltrúi bankans uppfylli skilyrði laga
nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerðar (ESB)
2016/679. Í bréfinu kemur fram að Persónuvernd geri ekki athugasemdir við
tilnefningu regluvarðar Arion banka hf. sem persónuverndarfulltrúa hans að svo
stöddu, en jafnframt segir að það mat byggi á núverandi forsendum og þeim
gögnum sem bankinn hefur látið stofnuninni í té.