Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. febrúar 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Breytingar á skipuriti Persónuverndar

Ákveðnar hafa verið breytingar á skipuriti Persónuverndar. Tilgangur breytinganna er einkum að einfalda skipulag stofnunarinnar og auka skilvirkni. Breytingarnar byggja meðal annars á niðurstöðu skipulagsdags starfsmanna sem haldinn var 4. desember 2023, þar sem starfsmenn ásamt utanaðkomandi sérfræðingi endurskoðuðu skipulag Persónuverndar og fóru yfir það sem vel hefur tekist í vinnuhögun og verkferlum Persónuverndar og það sem betur mætti fara.

Breytingarnar felast meðal annars í því að í stað þriggja sviða á skrifstofu Persónuverndar verða tvö svið, Alþjóða- og fræðslusvið og Eftirlitssvið.

Helga Sigríður Þórhallsdóttirlögfræðingur hefur tekið við stöðu sviðsstjóra Alþjóða- og fræðslusviðs og Valborg Steingrímsdóttir lögfræðingur hefur tekið við stöðu sviðsstjóra Eftirlitssviðs.

Breytingarnar tóku gildi 15. febrúar sl.