Á tíundu ráðherraráðstefnu samstarfsvettvangsins Forest Europe var ritað undir yfirlýsingu 46 Evrópuþjóða um sjálfbæra skóga fyrir viðnámsþolin samfélög. Forstöðumaður Lands og skógar undirritaði yfirlýsinguna fyrir Íslands hönd. Á ráðstefnunni var meðal annars áberandi sú aukna áhersla sem lögð er á notkun timburs í húsbyggingum en einnig kom fram að skógar eru nú tilteknir sem nauðsynlegir innviðir í varnaráætlunum Evrópulanda.