Í ljósi ábendinga sem borist höfðu embætti landlæknis frá notendum heilbrigðisþjónustu var gerð hlutaúttekt á aðgengi að göngudeildarþjónustu (e. outpatient care) vegna gigtarsjúkdóma fyrri hluta árs 2019. Skoðað var aðgengi að og notkun á göngudeildarþjónustu á heilbrigðisstofnunum og á starfsstofum sjálfstætt starfandi gigtarlækna.