Ketill Berg Magnússon hefur verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra mannauðs hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Ketill mun taka við stöðunni þann 1. janúar næstkomandi, en hann hefur starfað sem svæðisstjóri mannauðsmála fyrir Norður Evrópu hjá Marel á Íslandi undanfarin ár.