4503 leitarniðurstöður
Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu síðustu tvær vikur, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Breiðholtsbraut, Sundlaugavegi, Gullinbrú, Arnarnesvegi, Barónsstíg, Suðurlandsvegi og Bæjarbraut.
Hreinn Óskarsson, sviðstjóri hjá Landi og skógi, afhenti Hvatningaverðlaun skógræktar 2026 við hátíðlega athöfn í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi á alþjóðlegum degi skóga 21. mars. Verðlaunin hlaut Björgvin Örn Eggertsson, sem hefur um árabil unnið ötullega að þekkingar- og fræðslumálum í þágu skógræktar.
Í framhaldi af frétt sóttvarnalæknis þann 8. janúar síðastliðinn um að mislingar hefðu greinst hjá barni hér á landi 6. janúar vill sóttvarnalæknir upplýsa að engin ný tilfelli hafi greinst í kjölfarið.
Frumkvæðisathugun Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) á akstursþjónustu fyrir fatlað fólk og eldra fólk á landsvísu leiddi í ljós að umtalsverður fjöldi einkaaðila sem sinna akstursþjónustu var ekki með nauðsynlegt rekstrarleyfi til þess að veita þjónustuna. Sveitarfélög hafa nú verið hvött til þess að gera viðeigandi úrbætur til þess að tryggja að viðkomandi aðilar séu með rekstrarleyfi til þess að veita akstursþjónustuna og hefur hluti þeirra brugðist við nú þegar.