4502 leitarniðurstöður
Í vikunni stóð Fjársýslan fyrir viðburði um reynslumiðlun af opinberum nýsköpunarverkefnum. Á viðburðinum deildu verðlaunahafar Nýsköpunarverðlauna hins opinbera reynslu sinni af ferli umbótaverkefna allt frá hugmyndum í framkvæmd og eftirfylgni.
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) hefur að beiðni Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins stofnað til frumkvæðisathugunar á eftirliti barnaverndarþjónusta með börnum í fóstri.
Notkun allra kjarnaþjónusta á Ísland.is óx árið 2024 og því mikilvægt að tryggja að sú aukning skili sér alla leið — að notendur viti af og velji stafrænar lausnir umfram pappírsferli.
Jafnréttisstofa hefur uppfært leiðbeiningar til fyrirtækja og stofnana um gerð jafnréttisáætlana. Nýjum áherslum í leiðbeiningunum er ætlað að tryggja víðari sýn á jafnrétti þar sem fjölbreytni íslensks vinnumarkaðar er spegluð.