Vilt þú vera hluti af öflugri liðsheild sem stuðlar að vinnuvernd og öryggi? Vinnueftirlitið leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi einstaklingum með mikla þekkingu og áhuga á vinnuvélum og tækjum til að ganga til liðs við teymi sérfræðinga á vinnuverndarsviði. Annars vegar á Ísafirði og hins vegar í Reykjanesbæ eða Reykjavík.