Tilkynningum um heimilisofbeldi fjölgaði á tímabilinu en alls bárust 316 tilkynningar frá janúar til mars, samanborið við 274 á sama tímabili í fyrra. Þetta er tæplega 15% aukning milli ára. Sé litið til meðaltals síðustu þriggja ára er aukningin 10%.