10000 leitarniðurstöður
Nú eru vottorð um jákvæð hraðpróf vegna COVID-19 komin í Heilsuveru.
Í síðustu viku var inflúensan staðfest hjá 36 einstaklingum, sem er aukning borið saman við vikurnar á undan. Þar af voru 12 með inflúensu A(H1) pdm09, 16 með inflúensu A(H3), einn með ótýpugreinda inflúensu A og sjö með inflúensu B/Victoria.
Embætti landlæknis gaf út leiðbeiningar um vinnulag við greiningu og meðferð ADHD árið 2012 og styttri útgáfu árið 2014. Leiðbeiningarnar hafa nú verið uppfærðar og gefnar út að nýju.
Í síðustu viku var blásið til kynningar á störfum hjúkrunarfræðinga og iðjuþjálfa og var kynningin haldin í Háskólanum á Akureyri. Kynningin var opin hjúkrunarfræðinemum á 3ja ári ásamt iðjuþjálfunarfræðinemum.
Útbreiðsla COVID-19 er áfram gríðarlega mikil og hefur áhrif víða í samfélaginu þótt reglur um sóttkví og einangrun hafi verið felldar niður.
Að gefnu tilefni árétta Lyfjastofnun og embætti landlæknis að lyfið Soolantra (ivermektín) 10 mg/g krem er einungis ætlað til notkunar útvortis á húð til meðferðar við bólum og þrymlum sem fylgja húðsjúkdómnum rósroða.
Bóluefnið Influvac inniheldur vörn gegn inflúensu A(H1N1), A(H3N2) og inflúensu B.
Nýtt verklag var um áramótin tekið upp hjá mæðravernd heilsugæslunnar við Rhesusvarnir, en þá var fyrirbyggjandi gjöf Rhesus mótefnis á meðgöngu innleidd hjá Rhesus D neikvæðum konum sem ganga með Rhesus D jákvæð börn.
Ríkislögreglustjóri, í samráði við sóttvarnalækni, hefur ákveðið að aflýsa óvissustigi almannavarna vegna heimsfaraldurs COVID-19.
Sjónin er eitt þriggja fjarskilningarvita okkar; hin eru heyrn og lyktarskyn.