Mikil umferð var um umdæmið og talsverður hraði á umferðinni, alls voru um 130 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur. Nokkuð margir óku á 120-130 km/klst en tveir ökumenn mega eiga von á því að missa ökuleyfi sitt tímabundið en annar þeirra ók á 148 km/klst og hinn á 151 km/klst.