Fara beint í efnið

Skráningareglur ökutækja

Þjónustuaðili:

Síðast uppfært:

1. febrúar 2026 -

Gildir frá: 01.06.2024. Skráningareglur ökutækja eru fyrir fagaðila sem sinna skráningum í umboði Samgöngustofu eða tilkynna breytingar í ökutækjaskrá samkvæmt lögum.

    Umskráningar (eigenda og umráðenda)

    Eftirtaldir aðilar geta gert samning um að vinna í umboði Samgöngustofu hvað varðar móttöku tilkynninga um skráningu eigenda og umráðenda (kallaðir þjónustuaðilar):

    • Faggiltar skoðunarstofur ökutækja

    Sértilfelli eigendaskráningar

    Nokkur sértilfelli eigendaskráningar koma reglulega upp. Þjónustuaðilar hafa til 30. apríl 2025 heimild til að móttaka gögn vegna slíkra tilvika en eftir það ber að vísa þeim beint til Samgöngustofu.

    • Eigendaskipti afskráðra ökutækja

    • Eignatilfærsla við andlát

    • Eignaskipti við hjónaskilnað

    • Gjaldþrot og nauðungarsala

    • Kennitölubreyting aðila

    • Eigendaskipti erlendra ríkisborgara

    • Eigendaskipti samkvæmt afsali

    • Eigendaskipti sendiráðsökutækja

    • Riftun eigendaskipta