Fara beint í efnið

Leiðbeiningar við útfyllingu á útflutningsskýrslu

Þjónustuaðili:

Útflutningsskýrsla er lögboðið skjal við sérhvern útflutning í atvinnuskyni. Hægt er að skila henni rafrænt eða á pappír, eyðublað E-2.1

Ef þú ert með heimild til rafrænnar tollafgreiðslu sendir þú skýrsluna rafrænt beint til Skattsins. Ef ekki, skilarðu útfylltu E-2.1 eyðublaði við tollstöð.

Reitir sem ekki koma fram í leiðbeiningum eru ekki notaðir við útflutning.

    Vörur, tollflokkun og verð - reitir 31 til 47

    Reitir 31 til 47 gilda um hvert tollskrárnúmer fyrir sig. Nota framhaldseyðublað E-2.2 eða E-2.4 þegar sending inniheldur fleiri en þrjú tollskrárnúmer.

    Tilgreina skal hér FOB verð tollskrárnúmersins í reit 33 í þeirri mynt sem tilgreind er í reit 22. Samtala reita 46 mynda heildar FOB verð sendingarinnar sem skal vera sama tala og í reit 22 +/- talan í reit 28.

    Dæmi:

    • Sé vara seld CIF erlend höfn skal flutningskostnaður, vátryggingariðgjald og annar kostnaður dreginn frá áður en upphæð er færð í reitinn.

    • Sé vara seld EXW skal bæta við kostnaði við að koma vörunni um borð í útflutningsfar.

    • Sé vara metin til tolls skal færa matsverð hér inn í íslenskum krónum.

    • Sé um að ræða vöru sem er endurútflutt eftir viðgerð eða aðra aðvinnslu og varan breytir ekki svo eðli sínu að úr verði ný vara, skal setja hér viðgerðar- eða aðvinnslukostnað að viðbættum öðrum kostnaði við að koma vörunni um borð í útflutningsfar.

    • Sé um að ræða vöru sem endurútflutt er eftir aðvinnslu skal gefa upp fullt FOB verð vöru, þ.e. innflutningsverð vöru að viðbættum aðvinnslukostnaði og kostnaði við að koma henni um borð í útflutningsfar.

    • Sé um að ræða vöru sem send er utan til viðgerðar eða annarrar aðvinnslu og sem verður seinna endurinnflutt, skal gefa upp FOB verð eins og um venjulegan útflutning væri að ræða.

    Gerð svæðis: (n..11,2)
    E-6 (23)